Það eru bara fífl sem eru að kjósa fólk fyrir að vera “hresst” eins og þessi dýrlingur vinstrimanna hún Ingibjörg, eða “fyndinn” eins og Davíð. Orð eins og “ákveðin(n)” “leiðtogahæfileikar” og slíkt eru svo svo ofnotuð að þau eru orðin marklaus.
Málsstaður sem þarf að afla fylgis með ódýrum auglýsingabrellum og stjörnustælum stendur varla undir sér, og því væri fínt að fólk myndi vaxa upp úr þessari þrælslunarlega leiðtogadýrkun og yfirborðsmennsku og velja eftir málefnum og taka rökum.
Ég verð svo að segja það að með fullri virðingu fyrir þessum stjórnmálamönnum sé ég þau ekki verða professional kúlista í bráð. Látum Britney sjá um að vera æðislega sæt eða what ever, Björk um útgeislunina og óútskýranlega þokkan og bla, bla , bla
, skúringarkall hins vegar halda sig við að skúra gólf vel og stjórnmálamann að stjórna vel….
Það er ekki eins og þau fari að vinna módel eða tónlistarkeppnir í bráð hvort sem er, og flokkur sem þarf á æðislegheitum að halda er annað hvort að höfða til aula og fífla eða hefur ekkert sem skiptir máli fram að færa á sínu sviði.
Það er sviði skúringarmanns að skúra, stjórnmálamanns að stjórna, og óþarfi að blanda kúlheitum inn í það, enda fullt af fólki 100000000000000000% meira kúl en flestir þessir ofmetnu stjórnmálamenn á því sviði.
Og svo er fólk að setja út á þá sem kaupa geisladiska af því söngkonan framan á er svo sæt eða allir strákarnir í boybandinu svo sætir, og sama fólk kýs svo einhvern afþví “coverið” á stjórnmálabandinu er svo “æðislegt” eitthvað. Fífl eru þetta, og verða ennþá meiri fífl með þessu röfli um þessa “æðislegu” leiðtoga sína, ekkert fólk sem er ekki vægast sagt vitlaust og lætur draga sig á asnaeyrunum fellur fyrir svona, og það fólki sem myndi nú ekki meika það í kúlheitabransanum hvort sem er, ekki að það skipti máli fyrir fólk sem starfar ekki við að vera kúl og æði.
Óþolandi hvað flokksbundnadótið er farið að minna á sértrúarsöfnuði margt. Það sorglega við hina yndislegu uppfinningu lýðræði er auðvitað þetta, bunch af hálfvitum komast á ranga staði, en samt skárra að hafa þá marga (þess vegna meðal annars fundum við þetta upp) auðveldara að losna við þá verstu, og vonandi einhver vitrari alltaf þarna inn á milli (meiri líkur í svona stórum hópi mögulega, veit ekki) til að hafa vit fyrir hinum ösnunum með sína stjörnudýrkun smælandi eins og heilaþvegið dót á herbalife, nýgengið í geimverusöfnuð, röflandi með glampa í augum um hvað “hinn mikli” leiðtogi sé nú “hress”
Maður bara skammast sín fyrir hönd landsins, ekki beint til að auka það álit á okkur að við séum ekki heimsk oh heilaþvegin, hugsunarlaus, ósjálfstæð þjóð með ofstóran skammt af þrælslund og undirlægjuhætti svona f______ leiðtogadýrkunar árátta.