Vitiði….það er kominn heill hellingur af gaurum og stelpum hér í heiminum sem halda að þau séu ljót og ógeðsleg…elskurnar mínar, fegurðin kemur innan frá…í flestum tilvikum, svo er náttúrulega fólk sem er bæði ljótt og leiðinlegt, og á aldrei eftir að eignast neitt í lífinu, nema kannski maka sem er ljótur og leiðinlegur, þ.e.a.s. ef báðir aðilar sætta sig við þá staðreynd að þeir eru ljótir og leiðinlegir og geti ekki fengið neitt betra, og þá geta þeir átt ljótt og leiðinlegt líf saman og já auðvitað, gert heiminum það að eignast 10 ljót og leiðinleg börn, og þannig gott fólk, verður heimurinn brátt fullur af ljótu og leiðinlegu fólki. Og ég er að meina HEIMURINN, ekki bara bretland. Þannig að ég sendi hérmeð skilaboð til ljóta og leiðinlega fólksins: Með allri minni vinsemd, ekki gera okkur það að eignast börn!!!! Svo er auðvitað til fallegt og leiðinlegt fólk…við vitum hvernig það er, tíkurnar og hundarnir sem fara illa með allt og alla og halda að þau komist áfram á útlitinu einu og saman. Svo er til ljótt og skemmtilegt fólk, sem verður venjulegt í útliti af því það er skemmtilegt og á þessvegna góða möguleika á góðu lífi. Nú, svo er auðvitað til folk sem er bæði fallegt OG skemmtilegt, en svoleiðis fólk er mjög erfitt að finna, það er nefnilega svo sjaldgæft. En sá sem finnur sér þannig manneskju fyrir maka getur auðveldlega talist mjög heppinn!