Ég trúi því eiginlega ekki að þesi grein sé ekki grín. Að einn daginn muni ég vakna við það að þínir líkir hlaupi um allar götur hrópandi að þið hafið allir verið að grínast og að svona ofboðslega yfirgengileg og óforskömmuð fáfræði sé í raun ekki til í alvörunni. Raunar er hálf kjánalegt að kalla þetta grein. Þetta eru rétt rúmlega tvöhundruð orð af órökstuddum fullyrðingum
Lýðræði í írak? Ástandið þar er verra en nokkru sinni fyrr og meira að segja rebúblikanar vita að stríðið er að fara á sama veg og Víetnam. Forsendan fyrir lýðræði er efnahagslegur stöðugleiki, ekki öfugt. Það eru ýmsir hlutir sem þurfa að vera fyrir hendi svo að hægt sé að mynda lýðræðislegt kerfi, og enginn þeirra er almennilega kominn á í Írak.
Tortíming Ísraels er enganveginn raunhæft markmið neins þar sem allir homo'ar af gerðinni sapiens sapiens vita að þarna er ekki um tvo jafnvíga heri að ræða. Raunar er þetta andspyrnuhreyfing, eða í þínum fáfróða huga; “hryðjuverkasamtök”, gegn skipulöggðum her studdum af heilu heimsveldi, í þínu ennþá óupplýstara heilabúi; “kapparnir”.
Heldurðu að rússar og bna séu að fara að vinna saman í því að byggja varnarskjöld gegn smáríkinu Íran, því að þeir séu svo mikil ógn gegn sameiginlegum hagsmunum þessara ríkja? Og þú telur það fullvíst að Íranir muni skjóta eldflaugum að Azerbaijan.. og að þessi “skjöldur” muni vernda þá gríðarlega mikilvægu íbúa og landsvæði sem það ríki hefur að geyma?
Þarf ég að spyrja þig hvert eina ríki veraldarsögunnar sem notað hefur Kjarnorkuvopn er? Þarf ég að benda þér á hvaða heimsveldi hefur ráðist á flest erlend ríki og laggt þau í rúst með heiftarlegu ofbeldi á skömmum tíma er? Þarf ég að benda þér á hvaða ríki býr yfir stærsta vopnabúri veraldarsögunnar og, miðað við ofbeldisfulla fortíð þess, er mest tilbúið að beyta þeim? Heldurðu að það séu Íranir?!
Allir þeir sem berjast gegn BNA og stuðningsmönnum þeirra eru hryðjuverkamenn og eiga ekki skilið neitt annað en dauða? Það er engin möguleg ástæða fyrir barráttu þeirra, önnur en sú að þeir séu illir? Palestínska þjóðin kaus þann flokk sem helst vill berjast fyrir frelsi þeirra, vegna þess að þeir eru allir svo grimmir og vilja bara drepa alla “vini okkar” Ísrael. Þú ert semsagt að segja að þegar Palestínumenn sætti sig við ok Ísraelsmanna, þá eigi þeir rétt á mannréttindum og ekki fyrr? Kynntu þér málið minn kæri og þá getum við talað við þig eins og mann.
Ég sé að hér hafa margir heimskir kynþáttahatandi kjánar commentað og talað um alla gyðinga í niðrandi merkingu, sem er slæmt, en þessi svokallaða grein er skrifuð af svo miklum vanskilnigni á stöðu þess heimshlutaa og þeirrar þjóðar sem um ræðir að manni finnst þau þeir nánast hafa rétt á að tala svona.
Ég er ekki að segja að allir eigi að vera sammála mér, það væri ekkert gaman, en ef þið ætlið að hanga á fullorðins áhugamálum þá verðiði líka að skrifa í takt við það.
En, þú ert að grínast, í alvöru. Það bara hlýtur að vera. Ef að þú ert að því þá biðst ég velvirðingar á að hafa ekki fattað það, en ég hef séð margt slæmt á þessari síðu, svo ég veit varla í hvorn fótinn ég á að stíga. Ef að þér er alvara þá þarf hærra máttarvald en mig sjálfan til að rétta þig af. Ég hef laggt mig í líma við að snúa ófáum illa höldnum manninum frá fáfræði en þetta er allt of stór biti.
Ég legg til með mikilli vinsemd að stjórnendur herði körfur sínar um hvað teljist sæmandi grein á þessu áhugamáli.