Ég ætla að leyfa mér að skrifa hér upp bréf sem ég fékk sent heim til mín á dögunum. Fékk það frá Sjálfstæðismönnum í Árborg, daginn eftir að bæjarstjórnin sprakk.
: "Afhverju sleit B-listinn samstarfinu?
Í gær sleit Framsóknarflokkurinn í Árborg meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Raunverulegar ástæður þessarar ákvörðunar eru fyrst og fremst ágreiningur um skipulagsmál, launamál bæjarfulltrúa og trúnaðarbrestur.
Sjálfstæðismenn hafa lagt áherslu á fagleg vinnubrögð í skipurlagsmálum og að vinna með hag íbúa að leiðarljósi. Þeir höfnuðu hugmyndum framsóknarmanna um stórfelldar launahækkanir bæjarfulltrúa og hlunnindargreiðslur til handa formönnum nefnda. Sjálfstæðismenn héldu trúnað í meirihlutanum allt til loka, þegar fulltúar B-lista Framsóknarflokks gengu gegn fyrri samþykkt meirhlutans á byggingar- og skipurlagsnefndarfundi í gær.
Skipurlagsvandi - arfleifð frá fyrri bæjarstjórn
Skipurlagsstofnun hefur gert alvarlegar athugasemdir við tillögu um deiliskipurlag 51-59 og fjölmargir íbúar hafa mótmælt fyrirætlunum harðlega, enda er hér gengið gegn áliti fagaðila. Sjálfstæðismenn lögðu til leiðir til lausnar, m.a. annars með því að málið yrði sett í faglegan farveg og hins vegar að samstarfsflokkarnir ynnu að málamiðlun. Hvoru tveggja var hafnað af framsóknarmönnum.
Launakröfur framsóknarmanna - óásættanleg hækkun
Hugmyndir framsóknarmanna um stórfellda hækkun launa og hlunninda voru óásættanlegar. Um var að ræða hækkun á heildarlaunalið bæjarfulltrúa og nefndarmanna um 43% á milli áranna 2006 og 2007. Þá hefðu laun eins bæjarfulltrúa B-lista hækkað enn meira eða um liðlega 75 prósent; úr 174.400 krónum í 305.800 krónur. Árlegur kostnaður hefði verið 8,5 milljónir króna. Sjálfstæðismenn lögðu til að í stað hækkunar launa til bæjarfulltrúa yrði samsvarandi fjárjæð varið í íþróttastarf barna og unglinga. Það fékk ekki undirtektir hjá framsóknarmönnum.
D-listinn vinnur af heilindum - nú sem fyrr
D-listi Sjálfstæðisflokks hefur unnið af fullum heilindum fyrir íbúa Árborgar og lagt áherslu á uppbyggingu í íþróttamálum, bætt skipurlagsmál og traustari fjármálastjórn. Vilji íbúanna endurspeglaðist vel í úrslitum kosninganna í vor þegar fyrri bæjarstjórn Samfylkingar og Framsóknar féll og Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig tveimur fulltrúum. Vilji kjósenda var skýr: Breytinga var þörf. Framsóknarmenn reyndu að mynda meirihluta með Samfylkingu og Vinstri Grænum. Sú tilraun mistókst. Nú hálfu ári síðar reyna þeir á ný. Íbúar í Árborg þurfa staðfesta bæjarstjórn sem er tilbúin að taka á rekstri bæjarins og horfa til framtíðar í lykilmálum. Upplausn í bæjarmálunum er íbúunum dýrkeypt. Væntingar um metnað í íþróttastarfi, fagleg vinnubrögð í skipurlagsmálum, lækkaðar álögur á eldri borgara og jafnvægi í rekstri eru sett í uppnám. Framsóknarmenn sýna fáheyrt árbyrgðarleysi með ákvörðun sinni og sér ekki fyrir endann á hve miklum skaða hún mun valda.
Bæjarfulltrúar D-listans munu áfram sem hingað til vinna af einurð fyrir íbúa Árborgar, hvort sem er um að ræða í minnihluta eða í meirihluta. Úrlausnarefnin eru enn þau sömu og þau voru. Breytinga er þörf.
2. desember 2006
Sjálfstæðismenn í Árborg"
———————————————————————————————-
Hvað finnst ykkur um þetta mál? Endilega tjáið ykkur.