Folter og aðrir góðir hugarar:
Er besta leiðin til að koma ættleiðingum samkynhneigðra og öðrum þörfum málum í gegn að mismuna öðrum?
Seinast þegar ég vissi bjó ég í landi þar sem mismunun var illa liðin, þetta hefur sem sagt breyst.
Einhver minntist á strippara, það eru ekki allar erlendar konur hér stripparar.
Ég er sammála því að passa verður upp á að við lendum ekki í sömu vandræðum og frændur okkar á norðurlöndum, en þetta er ekki leiðin, mannréttindabrot eru aldrei til góðs.
Hvað með Dani? eða Svía? ef konan mín er sænsk og er 22 ára telst hún þá ekki vera konan mín? en stjúpsonur minn hann er bara fimm ára, þýðir þetta að ég þarf að lifa í útleigð frá mínu eigin landi til að geta búið með sænsku konunni minni?
Það eru ekki allir útlendingar sem búa hér Negrar, arabar, tælendingar og stripparar, ég tek þetta fernt fram vegna þess að miðað við skrif ykkar eru það þessir hópar sem þið viljið losna við.
Um að gera að hugsa áður en maður tekur afstöðu með máli sem mun breyta okkur í land sem verður á lista yfir lönd sem brjóta mannréttindi
Góðar stundir
Gyzmo