Ég held að hann sé ekki alveg heill, en það er ekki vegna tómatsósumálsins eða jólasveinamálsins. Mér finnst nóg að lesa þessa grein á síðunni hans forsetakosningar.is: “Við verðum að stöðva skepnuna” (
http://213.220.98.112/forum/forum_posts.asp?TID=15&PN=1 ). Þarna kemur fram fáránleg samsæriskenning sem er svo uppfull af gyðingahatri og rugli að annað eins hefur ekki heyrst síðan í Mein Kampf og Protocols of Zion. Hérna er stutt brot úr greininni:
"Menn af gyðingaættum sem hafa dregið upp þá áætlun að yfirtaka Írak, síðan Sýrland og brjóta Sádi Arabíu upp í smærri einingar til að ná yfirráðum yfir stærstu olíuauðlindum jarðar.
[...]
Spyrjið hvaða hagfræðing sem er, hvort ekki sé staðreynd að þeir sem ráða yfir olíubirgðum jarðar, ráða heimsbyggðinni.
Skýringin á því hvernig bandaríkin styðja Ísrael í hverju sem er og láta Ariel Sharon komast upp með hvern stríðsglæpinn á fætur öðrum, er að bandaríkjunum er stjórnað af sömu ættarveldunum og ráða Ísrael. Þeir ráða stærstum hluta fjármagns í bandaríkjunum og stærstu hergagnafyrirtækjunum. Þetta ósýnilega afl hefur spunnið vef kringum stjórnkerfið í Washington sem getur sig hvergi hreyft án þeirra.
Ósýnilega höndin teygir sig heimsálfanna á milli Bandaríkjanna og Ísrael og knýr nú á um ragnarrök."
Því miður eru raddir kynþáttahatara eins og þessa sífellt háværari í íslensku samfélagi, og finnst mér ekki ólíklegt að svona rugl hljóti hljómgrunn hjá eindregnum stuðningsmönnum hryðjuverkamanna og bókstafstrúuðum Bandaríkjahöturum, en það er aldrei langt í hass-paranoiuna hjá þeim hópi. Ég vona samt að flestir sem eru með kollinn í lagi átti sig á því að það er ekki heil brú í þessu, og svona málflutningur er tímaskekkja á 21. öldinni. Kynþáttahatur er vaxandi vandamál á Íslandi, og við þurfum ekki mann sem aðhyllist slíkt í forsetaembætti, hvað þá mann sem virðist vera haldinn kvenfyrirlitningu á háu stigi (sjá viðtal í DV um helgina þar sem hann sagði stað konunnar vera á heimilinu við húsverkin).