Æi æi eruð þið blámenni farin að örvænta, greyin Dabbi kóngur ekki lengur vinsæll, fólk farið að sjá í gegnum allar lygarnar og sérhagsmunagæsluna síðustu 12 ár. Og þið sitjið ekki lengur einir að því að geta sagt ykkar skoðun án þess að gripið sé fram í. Ekki jafnaðarflokkur segiði !
Hmm hvernig væri að lesa stefnuskrá hinna flokkanna svona til tilbreytingar í stað þess að kokgleypa alltaf allt eins og gapandi fiskar það sem Davíð og Kó segir ykkur að sé rétt. hvernig væri svona einu sinni að mynda sér sjálfstæða skoðun það er jú einu sinni inntakið í nafninu á flokknum ykkar þó svo lítið fari fyrir því í raun.
Sjálfstæðisflokkurinn er uppfullur af sauðum sem elta forystuna í einu og öllu. Forystan er svo sjálf svo utangátta um það sem fólkið í landinu vill að þeir högðu enga stefnu þegar að kosningum kom og öpuðu því bara upp það sem hinir ætla að gera og klíndu smá gulrót við það allt. það er bara ekki trúverðugt að ætla að “redda” þessu núna þegar þeir hafa haft 12 ár til að gera þetta.
svo ein spurning að lokum
hvar er aðalfanatíkusinn ykkar hann hannes Hólmsteinn, er hann í banni af því hann bullar tóma steypu nú orðið og froðufellir af bræði, skyldi vera að þetta sé ekki talið gott fyrir popularity og kannski almenningur fatti hvað blámenn eru miklir eiginhagsmunaseggir,
NEWSFLASH það er of seint þið eruð úti guys
betra fólk er að fara að jarða ykkur og taka við.
kosningakveðjur
p.s það verður gaman að sjá hvort þið bregðist ekki við þessu bréfi á sama hátt of formaðurinn bregst við gagnrýni, með persónulegu skítkasti það er nefnilega eina leiðin ykkar að virðist þegar syrtir í álinn.