Ég er reyndar ekki búinn að lesa nema brot af því sem hefur komið út um hann en mér finnst hann ekkert vera að leita í ofvæni að fólki sem líkar við hann. Hann virðist sætta sig við að fólk muni aldrei skilja hann og alltaf óttast hann hvert sem hann fer og hann er svona þessi stóíski verndari í skugganum.
Skil samt að þér finnist það hallærislegt.
Ég fíla hann allavega ágætlega, reyndar er hann kannski aðeins of goody-two-shoes stundum og eina sem hann á eftir af Drow arfleið sinni er einhver bardagaheift sem kemur bara fram þegar hann berst við vondukalla (for all i know). En hey, hann er hetja og hetjukallar hafa klásúlur í samningunum sínum sem leyfa þeim að hafa persónuleikaklisjur og skapgerðareiginleika sem stangast á í akkúrat réttri blöndu
The Game - You just lost it