,,ég byrja á því að limlesta þig'' segir Zethar rólegur með illilegan glampa í augunum. ,,Síðan ætla ég að sjúga hvern einasta blóðdropa úr þér og henda þér aftur í rúmið meðvitundar- lausum''. Gamli maðurinn var frosinn af hræðslu við þennann óvenjulega hávaxna og föla mann sem talaði eins hátt hvísl. ,,ég get líka bara strax'' byrjaði Zethar rétt áður enn hann beit manninn fast í slagæðina með stórum vampírutönnum sínum. Blóðið sprautaðist í allar áttir og lennti við og við uppí munn Zethar sem setti út tunguna og brosti. Þegar hver einasti blóðdropi var þurrausinn úr gamla manninnum tók Zethar hann upp og lagði hann í rúmið. ,,sofðu rótt''.
Zethar vaknaði við að einhver var að berja á kistuna hans, hann opnaði hana hægt og sá þar mann með viðarfleyg og hamar og beindi fleygnum að hjarta hans. Zethar var fljótur að átta sig og breytti sér í gufu, fór uppúr kistunni og bakvið manninn sem var fljótur að snúa sér við. ,,hvaða erindi áttu hingað barn'' hvæssti Zethar með rýtinginn sinn uppi. ,,þú drapst föður vor'' sagði maðurinn ógnandi með fleyginn á lofti. ,,nú, hver er…var það, nei, hver ert þú?'' sagði Zethar og varð rólegri enn þó á varðbergi. ,,ég er Asheer segir maðurinn. ,,þó þú drepir mig nú mun bróðir vor hefna mín. ,,sem er hver?''.

…Rack af Quelthon

Segið mér ef þið viljið framhaldið<br><br>Webboy89