Ég er persónulega alveg sérlega mikið á móti blöndun kynþátta (og þá meina ég blöndun álfa og manna og svoleiðis kynþátta, ekki svartra, hvítra og svo framvegis). Ég er jafnvel á því að álfar, menn, dvergar og svo framvegis séu ekki réttnefndir kynþættir heldur fari betur á því að nota orð eins og “tegundir” um þá. Og tegundir blandast yfirleitt ekki - og þegar það gerist er afkvæmið gjarnan ófrjótt (eins og gerist þegar blandað er saman asna og hesti, þá kemur út múldýr sem er ófrjótt).
En það er svo sem ekki umræðuefnið hér. Nú veit ég ekki hver sé staðan í kynþátta/tegundamálum í þeim heimi sem þú ert, en minnir að venjan sé sú, að dvergar og álfar séu ekki ýkja hrifnir af hvor öðrum. Sé það svo hjá þér þykir mér að þessi blendingur (móðgastu ef ég kalla hann múlatta?) ætti að frekar að fá mínus í reaction frá hvaða álfi eða dverg sem veit að hann sé svona blanda (svipað og viðbrögð rasista við t.d. einhverjum sem er blanda svarts og hvíts) og jafnvel frá öllum sem vita hvers lags blanda hann er, en annars hvorki plús né mínus í cha. Svo þætti mér eðlilegra að að hann fengi t.d. +1 í dex og +1 í con - eitthvað af liðleika álfa og eitthvað af heilsu dverga, en heilsuleysi hins hlutans kemur þó í veg fyrir að hann njóti þessarra eiginleika til fulls. Hinn kosturinn er svo sá að það sé hvorki plús né mínus í nokkru ability. Er ennþá í 3ed að álfar fái bónus þegar þeir berjast með langsverðum og langbogum? Sé svo ætti það að vera afnumið fyrir þennan. Svo er það líka möguleiki að svona blanda hafi einhver allt önnur áhrif: Til dæmis plús í str en mínus í cha/wis og ekkert hreyft við dex og con. En þá er hann e.t.v. orðinn of líkur hálforka?
A.m.k. ætti hann að þjást af alvarlegri tilvistarkreppu (sem gæti t.d. sýnt sig í einhvers lags mínus í XP þangað til að x level er náð - að ná levelinu gæti þá verið eins konar viðurkenning á því að honum hafi tekist að sætta sig við uppruna sinn? - eða þangað til að honum tekst að leysa gátu uppruna síns?). Veit ekki alveg hver hann er og svo framvegis. Og hafa hann ófrjóan - gæti gefið honum smá svekkelsi takist honum að t.d. koma upp veldi, þá getur hann ekki látið “sitt hold og blóð” erfa ríkið eftir sinn dag?
En kannske er ekki svo vitlaust að gefa honum mínus í con - genetískur óstöðugleiki?
Þetta er nóg í bili.<br><br>Þorsteinn.