Var að muna eftir einu góðu í viðbót sem ég verð að bæta við.
Þetta var back in the days of olde, fyrir 3rd Edition. Við vorum þrír að spila AD&D 2nd Edition saman. Ég var human female transmuter, meðspilari minn var elf male bounty hunter (sem var thief kit). Við höfum verið á um 8.-9. leveli þegar þetta gerðist. Eins og það æxlaðist var það samt hann sem endaði á að vera sá eftirlýsti oftar en ekki, nánar tiltekið Public Enemy #1 í nálægu, frekar voldugu, dvergaríki (það er.. löng saga). Dvergarnir reyndu ýmislegt til að ná honum með mismunandi árangri (hann var t.d. polymorphaður í stól sem dvergakonungurinn notaði sem hásæti í nokkra mánuði, á hinn bóginn tók hann út heilu herdeildirnar af hermönnunum þeirra með boganum sínum við annað tilefni…). Þegar hér er komið við sögu eru þeir orðnir frekar desperate.
Tveir mjög grunsamlegir hobbitar koma inn á krána sem hann rekur og segjast vilja færa honum hring að gjöf, sem laun fyrir þegar við björguðum héraðinu þeirra frá innrás fyrir nokkru síðan. Hann grunar strax að maðkur sé í mysunni og fer með hringinn til mín til að fá mig til að tékka á honum. Á þeirri stundu hef ég nýlokið við að summona (semi óvart) stóran, nasty, djöful með því að fikta við galdragrip úr síðasta ævintýrinu okkar. Sem betur fer fylgdi þjónusta hans með, í einhvern takmarkaðan tíma, svo hann var ekki fjandsamlegur. Allaveganna, álfurinn kemur með hringinn til mín og ég tékka á honum með þar til gerðum divination göldrum. Kemst ekki að nákvæmri virkni hans, en uppgötva þó að honum fylgja einhvers konar teleport kraftar. Og að hann er líklega cursed. Við leggjum saman tvo og tvo og fáum út átta: Gefum djöflinum hringinn. Hann setur hann á sig og hverfur um leið. Hlaupum að kristalskúlunni minni… sem segir okkur að djöfullinn er kominn eitthvert í Dvergalöndin. Hún dreif ekki gegnum fjöllin svo við komumst aldrei að því hvað gerðist nákvæmlega… En fokk hvað dvergarnir hafa orðið hissa, þeir bjuggust við að fá lítinn væskilslegan álf í gildruna síðan… en fengu stóran rauðan djöful í staðinn!
Við: 1
Dvergar: 0
:D
Peace through love, understanding and superior firepower.