Hvernig litist fólki á þessar reglur:
Almennar reglur/Persónusköpun:
1. Notast skal við allar Core bækur, Complete Arcane, Complete Warrior, Complete Adventurer og Complete Divine, Expanded Psionic handbook og Tome of Battle.2. Allir fá 36 punkta til að búa til persónur.
3. Allar persónur skulu byrja á 1. lvl. Þær persónur sem hafa LA leggja LA við level til að fá út raunverulegt level persónu, t.d. Aasimar Cleric 1 er jafngildi 2. lvl persónu.
4. Allir byrja með max starting gold, skv. PHB.
5. Fyrir sigur eru gefin xp. Sigurvegarinn fær jafngildi 1000 x lvl andstæðingsins, taparinn fær 0.5 x XP sigurvegarans og dómarinn fjórðung af heildarsummunni. Það kemur í hlut dómarans að deila niður hvorutveggja í lok leiks.ATH! Ekki er hægt að fara upp um level nema að berjast amk. einn bardaga á hverju leveli.6. Leikur telst unnin ef andstæðingurinn er unconscious, kominn undir -1 hp eða getur enga björg sér veitt, t.d. hefur verið lokaður inni með Imprisonment galdri. Ef báðar persónur deyja í sama roundi er jafntefli og skiptist þá xp þannig að það er 500 xp x lvl andstæðings, líkt og báðir hafi tapað.
7. Í upphafi bardaga skulu þátttakendur pósta character sheetum sínum og skal dómari yfirfara þau. Verði leikmenn vísir að svindli eða slíku, kemur það í hlut dómara að skera úr um hvernig skuli unnið úr slíku hverju sinni. Sé ástæða til, þá má dæma þann sem varð fyrir svindlinu sigurvegara og svindlarann úr leik.
8. Öll tengingaköst eru framkvæmd af dómara.
9. Dómari ákveður hvernig vígvöllur lítur út og hvort og hversu margar undirbúningslotur skulu vera fyrir hvern leik, í samráði við leikmenn.
10. Dómari hefur lokaorðið í hverjum leik.
11. Ekkert eitt magical item má kosta meira en sem nemur 40% af heildargulleign persónu. Heildargulleign er sú upphæð sem leikmaður hefur safnað sér í heildina, ekki sú gulleign sem hann á hverju sinni.
12. Ef persóna deyr í hringnum, þá er hún lífguð við af heilurum bardagahringsins.13. Í upphafi bardaga eru allir considered flatfooted þar til þeir eiga að gera.
14. Aðeins er hægt að taka þátt í einum bardaga í einu.
15. Allar persónur byrja hvern bardaga eins og eftir viku hvíld. Það er að segja, með full HP og full not af öllum hæfileikum sínum.Preparation rounds:
1. Komi leikmenn sér saman um að notast við prep rounds, skal það leyft. Ekki er ætlast til að prep rounds séu fleiri en 3.
2. Hægt er að nota þau til að kasta á sig göldrum, drekka potion, setja upp ready action, nota skill en ekki má hreyfa sig af upphafsreit.
3. Séu leikmenn ekki sammála um að nota prep rounds kemur það í hlut dómara að skera úr um hvernig skuli staðið að þeim. Einföld leið er að kasta upp á það.
4. Ekki má nota prep rounds til að gera beina árás á andstæðing sinn, kasta göldrum á hann (t.d enchantments) eða nota psychic powers sem hafa bein áhrif á andstæðinginn.
5. Aðeins er leyfilegt að nota prep rounds til að búa sig eða félaga sína undir bardagann.
Teymis-bardagar
1. Hægt er að spila sem teymi gegn annað hvort skrýmslum undir stjórn dómara eða gegn öðrum teymum eða persónum.
2. XP skiptist þá jafnt á milli þeirra er tóku þátt.
3. Vilji leikmenn spila gegn skrýmslum er hægt að fara fram á slíka bardaga, en fyrir þá skal veitt XP skv. DMG auk viðeigandi bónusa fyrir gott roleplay.
Hlutverk dómara og siðferði í hringnum.
1. Dómari skal gæta hlutleysis.
2. Dómari sér um teningaköst og skal gera svo á sem augljósastan og skýrastan hátt. Gott er að birta teningaköstin.
3. Sé dómari í vafa um hvað leikmaður hafi hugsað sér að gera, skal hann spyrja leikmanninn í stað þess að geta sér til það sjálfur.
4. Gerist leikmaður sekur um mistök ber hann sjálfur ábyrgð á þeim. Dómari er ekki settur yfir leikinn til að leiðrétta leikmenn eða leiðbeina þeim.
5. Dómari skal halda sig til hlés en skera úr um deilumál sem og sjá til þess að báðir leikmenn gangi sáttir af velli.
Siðferði leikmanna
1. Leikmenn skulu keppa heiðarlega og af drengskap.
2. Ætlast er til að leikmenn séu lýsandi í orðum annars vegar og útskýri með skáletrun allar þær reglur sem þeir hyggjast nota í sinni lotu, sem og AB, lýsingar á göldrum og save DC, stöðu HP og AC osfrv. Þetta er gert til að flýta fyrir störfum dómara.
3. Dómarinn ræður og þeir sem rífast við dómarann gætu sætt XP/GP refsingum. Komi upp vafamál skal hafa samband við stjórnendur áhugamálsins.
4. Athugið, að þó character sheet leikmanna séu birt, er ætlast til að leikmenn spili persónur sínar rétt og geri greinarmun á character knowlegde og player knowledge. Sjái dómari að leikmaður noti ítrekað character knowledge í spilun má hann draga xp/gp af viðkomandi leikmanni.
5. Gangið glaðir inn á völlinn sem og út af honum. Þetta er gert til skemmtunar og er EKKI samkeppni í persónusköpun.
Galdrar & Feats
1. Galdrar sem virka á alignment, virka á alla, þar sem erfitt er að notast við alignment í arena. Undantekning er þó á þessari reglu er um klöss er að ræða fast alignment, t.d. Paladins.
2. Leyfilegt er að mæta með fyrirfram lögð álög í bardaga ef og aðeins ef þau endast í 8 klukkustundir eða lengur.
3. Leadership featið er ekki löglegt.Peningamál
1. Þegar persóna hækkar um level þá skal allur búnaður hennar keyptur aftur fyrir nýju gullpeningaupphæðina sem persónan á, skv WBL. Þ.e. persónan “missir” alla hluti sem hún átti og getur keypt þá aftur fyrir nýju peningana sem koma með levelinu.
2. Ekki verður litið vel á algjöra umtörnun búnaðs milli levela í því skyni að klekkja á ákveðinni persónu.
?
Ég boldaði breytingar, sem eru frekar smávægilegar. Þetta var jú í grunninn mjög fínt reglusett. Fyrir þá sem ekki eiga ToB er linkur á hana hér:
http://rapidshare.com/files/90855296/Tome_of_Battle_-_Book_of_Nine_Swords.pdfTekur 5 mín að sækja hana. Wizards eru hættir að selja 3.5, svo þið fáið varla samviskubit.