Þú viðurkennir í fyrstu málsgreininni að þú vitir ekkert um hvað þú sért að tala
Nei, það gerði ég ekki - enn eina ferðina ert þú að snúa út úr því sem aðrir skrifa í þeim tilgangi að stofna til skítkasts. Ég ætla hins vegar ekki að sökkva niður á þitt plan og fara að rífast við þig - það er bara ekki þess virði.
Ég sagði að ég vissi ekki hvað það væri sem gerði að mönnum fyndist þessi mót svona slök. Það sem ég veit hins vegar er að nánast hver einasti þráður um þessi minimót undanfarna mánuði hafa snúist upp í skítkast eða þá að þeir hafa verið hundsaðir.
Það að einhver umræða fyrir heilum tveimur árum síðan hafi ekki gefið af sér neinar breytingar er bara voðalega ómerkilegur punktur - 2 ár er langur tími og er þá ekki bara betra að taka upp umræðuna aftur og reyna að ná lendingu í málinu heldur en að halda úti einhverri óánægju með Magnoliafan og co. út af einhverju sem gerðist fyrir 2 árum síðan!
Ég yrði lítið hissa ef þessir menn einfaldlega hættu að reyna þetta. Þeir fá ekkert nema vanþakklæti og leiðindi fyrir og þeir eiga það bara ekki skilið.
R.