Það tók mig u.þ.b. þrjár sekúndur að lesa þennan póst hans og ákveða að svara ekki, þar eð ég vissi ekkert um málið. Líklega hefur það tekið um tíu sekúndur fyrir þá sem vildu leggja orð í belg að svara.
Ef að tími þinn er svo mikilvægur að þú vilt helst ekki þurfa að eyða nokkrum sekúndum í að lesa svona pósta þykir mér merkilegt að þú skulir vera tilbúinn að eyða honum í að bögga þennann gaur. Helst dettur mér í hug að þú hafir einmitt verið til í að eyða þessum tíma sem svarið tók bara til að fleygja fúkyrðum í manninn, þar eð mörg svör þín hér innihalda einmitt slíka óhæfu, jafnvel svo mörg að ýmsum gæti farið að gruna að fátt þyki þér skemmtilegra en að lítillækka aðra.
Skítkast á vissulega í örfáum tilfellum rétt á sér, en þessi biturleiki er farinn að fara út yfir öll velsæmismörk.
-Internethippinn
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.