Qwashar (lvl 2 Hexblade) er á höttunum eftir verðugum andstæðingi. Hann er til í ýmislegt, helst einhvern á sama leveli. Einhver þarf að sjálfsögðu að dæma leikinn og óska ég hér með eftir einhverjum til þess.
Þá er það ákveðið, ég er búinn að fá character sheet frá Magnil þannig að þú mátt senda mér Lit bráðlega svo ég geti farið yfir allt áður en ég opna þráð.
Skeggjaður maður á miðjum aldri, íklæddur grásvörtum kufl kemur að máli við Qwashar utan arenunnar. 'Ég kann að meta hvernig þú berst, herra minn. Ég hef á mínum snærum ungan kappa sem … skortir fágun. Ég vildi athuga hvort hægt væri að fá þig til að miðla örlitlu af þinni kunnáttu til hans, ég veit að hann er ekki þægilegur umgengni, en ég mun borga þér vel.' 'Hvert er svar þitt?'
'Hehe, ég veit ekki um hvaða bardaga þú ert að tala, en ég býð 250 silfurmerkur. Við erum ekki að tala um áhættusamt einvígi, einungis örfáar ábendingar fyrir Karrick, þó hann skorti fágun, er hann merkilega fljótur að læra.'
Ég hef bara enn ekki fengið character sheetið fyrir Lit og get voðalega lítið gert fyrr en eitthvað gerist þar… nema þú hafir annan andstæðing fyrst Litur virðist lítið láta sjá sig.
Litur er greinilega bara kveif sem þorir ekki í Hexblade. Ég er með Samurai sem þorir í Hexblade og leiðist að hafa bardagana of létta. :) Magnil sagðist vera til í þessa áskorun og því sendi ég bara sheetið mitt fljótlega.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..