jæja, ég var að ræða við Helga í Nexus og vorum að ræða um Mini mótin.
Þá er það komið að stóru spurningunni!
Okkur Vantar 4 stjórnendur til þess að stjórna á Mini móti.
Mótið verður laugadaginn 10 Mars (alveg nógu tími fyrir fólk að plotta og velja kerfi).
Þær upplýsingar sem við viljum fá eru eftirfarandi.
Nafn stjórnanda:
Kerfi sem verður stjórnað:
Aldurs takmark (ef eitthvað):
Lýsing á sögu:
Aðrar upplýsingar (ef eitthverjar):
Gott er að hafa allavena eitt borð sem býður upp á D&D og annað borð (eða það sama) sem verður með ekkert aldurstakmark.
Nú er bara málið að taka upp býant, blað og byrja að plotta
Vona að sjá sem flesta á mótinu! :D