Þú ert að tala um mennina sem eiga heiðurinn að besta MMORPG sem er í boði í dag. Þessi fullyrðing er ekki algjörlega bara mitt mat, þar sem EvE online hefur sérstöðu á MMORPG markaðnum fyrir hvað notendafjöldinn vex rosalega hratt og bítandi, öfugt við flesta aðra MMORPG sem byrja með milljónir notenda en síðan lækkar talan mishratt. Enda vinna CCP í að stækka EvE sem tölvuleik, jafnt og þétt. Þetta bendir til þess að leikurinn vaxi með góðu orðspori, en ekki stórum og yfirgripsmiklum auglýsingaherferðum og bendir líka til að fólk festist í leiknum, en flosni ekki upp af leiðindum.
Ef það er eitthvað sem CCP hefur sýnt þá er það metnaður fyrir að gera eitthvað nýtt, svo ég efast um að þessi leikur verði þessi casual monster-grind fantasy-mmorpg.