Þetta var náttúrulega það spila sem minn hópur spilaði mest. Ég bý nú út á landi og flestir spilafélaganna fluttir suður þar sem þeir héldu áfram að hamast í þessu kerfi.
Reyndar ákváðu þeir að prófa eitthvað nýtt og eru núna að spila D&D. Þeir eru að spila feitt mikið þannig ég veit ekki hvort þeir hafa tíma í annað campaign, þeir spila orðið 1-2 í viku og þá oftast um helgar langt fram á nótt.
Hvaða kerfi hefðiru hugsað þér að nota. Þú veist kannski ekki að 4th edition var nýverið að koma út og hefur víst breytt reglunum töluvert auk þess að færa tæknina í skynsamt horf (tækni í Shadowrun var oft lélegra en það sem til var í dag (ekkert wireless tölvudæmi)).
Hvernig hefðuru hugsað þér að setja þetta upp, grúbbu með öllum tilheyrandi týpum eða fær Decker og Rigger að fjúka líkt og í mörgum hópum?
Spyr svona mest af einskærri forvitni.
“Where is the Bathroom?” “What room?”