Eberk….kíkið á www.hallofhero.com
Logan Kierold er 2nd lvl human wizard (Neutral Evil)
str 11, dex 14, con 13, int 18, wis 12, cha 11
Logan er af noble fjölskyldu í landi sem heitir Sarthin'lusde í heimi sem ég og nokkrir aðrir höfum búið til. Sarthin'lusde er land sem er mjög norðarlega á plánetunni og þess vegna mjög kalt þar. Sarthin'lusde er keisara dæmi og Kierold fjölskyldan, sem Logan er hluti af, er ein af 12 sem velja alltaf einn af sínum til að vinna sem ráðgjafar fyrir keisaran. Logan er ekki einn af þeim. Logan var sendur af föður sínum í wizard skóla þegar hann var 14 ára, faðir Logan þolir Logan ekki því hann vildi fá sterkan son sem mundi ganga í fótskref hans sem stríðsmaður, en í þessum skóla var komist að því að hann hefði nokkuð gott potential (18 í int) sem wizard og hann var snedur úr Sarthin'lusde í annan og betri skóla sem heitir Oracil's School of Magic. Logan kynntist í þessum skóla manni sem heitir Harold Brown, annar wizard lærlingur(str 5, int 16, cha 15) sem Logan neyddi til að gera svona his dirtywork. Harold Brown er spilaður af öðrum spilara. út af því að Harold er svona mikill aumingi (str 5) þá hefur Logan verið að neyða hann í ýmislegt. Logan útskrifaðist með Harold þegar Logan var orðinn 24 ára. Logan og Harold ferðast núna saman ásamt einni priestess of Night sem er gyðja hins illa og myrkurs sem heitir Arshes Nei og einum monk sem ég man aldrei hvað heitir. Núna er Logan að leita að leið til að komast hjá því að eldast.
Logan er mjög snobbaður og mjög hrokafullur. Hann getur verið það hrokafullur að jafnvel ég (sem spila hann) get fengið leið á honum. Loga er mjög gáfaður og veit það, hann ætlar sér ekki aðeins ódauðleika heldur heimsyfirráð (að einhverju leiti allaveganna). Hann og hópurinn sem hann ferðast með eru núna allir að vinna fyrir mjög powerful spellcaster (veit ekki hvernig) sem heitr Erthnic til að hjálpa honum að finna leifarnar af menningu sem dó út fyrir um það bil 3000-4000 árum síðan, þessi menning var einmitt svokallað magocracy sem þyðir að wizards stjórnuðu öllu landinu og þá eru án efa margir hlutir sem fólk eins og Logan gætu hugsað sér að eignast. Logan ætlar sér alls ekki að láta neitt sér af hendi til neins nema hann neyðist til þess.
Logan er sjálfsumglaður. Hann á auðvelt með að springa því hann er mjög skapstór.
Logan er 185 cm á hæð og 58 kg á þyngd sem þýðir að hann er hávaxinn og mjög mjór. Hann er með mjög sérstakt skegg sem er erfitt að lýsa. Hann er með skarpa andlitsdrætti ogaugu hans sýna það að hann telur sig hafinn fyrir ofan alla aðra eða mun verða það. Hann er með svart sítt hár sem hann greiðir alltaf beint aftur og augun hans eru fölblá. Hann gengur í svörtum, gráum eða off-white(veit ekki íslenska orðið) kuflum og hefur alltaf stafinn sinn í hendinni.
Sem barn og í gegnum alla sína skólatíð hefur Logan haft mikinn áhuga á sögu og landafræði og stundaði bæði af ákafa.
Logan á enga magical items nema þá spellbókina sína en hún telst varla magical item. Hann er samt sem áður nokkuð vel fjáður, ekki vegna fjölsyldu hans heldur vegna þess að hann hefur ásamt Harold fundið smá fjársjóð. Faðir Logan vill ekki að hann komi aftr til Sarthin'lusde fyrr en hann er orðinn með öflugri wizardum. Logan ætlar að kenna föður sínum leksíu einn daginn.
Ég hef skrifað dagbók Logan's síðan ég byrjaði að spila hann og mun gera það þangað til hann deyr, ef hann deyr. Ég skrifa eitt entry fyrir hvern dag í roleplay time.
Twisted
“I'm not young enough to know everything”