CyberPunk 2020 er einfalt og gerist 2020 (samkvæmt framtíðarsýn frá c. 1985 reyndar), heimurinn er breyttur og stórfyrirtæki ráða yfir stórum hlutum samfélagsins. Margs konar tækni er fáanleg, margt í formi ígræðslna.
Star Wars er, ja, Star Wars, gerist í sama heimi. Endilega einhver sem spilar það að staðaldri ætti endilega að skrifa hvort það sé flókið eða einfalt.
Traveller er að margra mati eitt besta spil sem gert hefur verið, ég hef aldrei spilað það en það er svona framtíðarheimur. Einhver sem getur lýst því betur?
Þú getur lesið um Shadowrun á hinum korkinum, það var umræða um það nýlega.
Nexus 6 hefur allavega sent mér hluti í póstkröfu en núna er ég með á hreinu hvað þeir eiga af því sem ég hef nefnt þar sem ég er ekki í Rvk og hef síðustu ár pantað meira af netinu.
Endilega láttu Ask vera.