Ég stel hérna lýsingunni hans Vargs
“Hér gefst spunaspilurum (Rólpleiurum, RPG-spilurum) tækifæri á að viðra sínar skoðanir á listinni, skiptast á hugmyndum og rotta sig saman um þau ýmsu málefni sem spunaspilun tengjast.
Roleplay (RPG), eða Spunaspil einsog orðið hefur hvað best verið íslenskað, lýsir ákveðinni tegund ævintýraleikja sem vinsælir hafa verið í grasrótinni í um 3 áratugi. Þekktasta spunaspilið er sennilega gamla Dungeons & Dragons sem gegnum tíðina hefur fengið misgóða útreið í fjölmiðlum. Þó spil þessi notist við eitthvað af hefðbundnum búnaði borðspila (s.s. tenginga) eru þau gjörólík öðrum spilum og í algjörum sérflokki. Í spunaspilum taka leikmenn sér hlutverk einnar söguhetju í ímynduðum heimi og vinna saman að því að leysa ýmis vandamál, ólíkt venjulegum borðspilum þar sem leikmenn etja kappi hver við annan. Spunaspil eru sennilega álíka vinsæl á Íslandi og hinum vesturlöndunum og eru sennilegast af einhverju magni leikin af hátt upp undir þúsund manns á Íslandi. Spilin eru leikin af hópum leikmanna frá 10 ára aldri og uppúr þó algengasti hópurinn sé sennilega á bilinu 15-30 ára.
Til gamans má geta að spunaspil eru það sem í upphafi hrinti af stað þeirri tegund tölvuleikja sem kallast hlutverkatölvuleikir (CRPG). Dæmi um slíka leiki eru: Eye of the Beholder, Ultima, Might and Magic, Fallout, og svo mætti lengi telja. Þessir leikir eru í raun tölvu-útgáfan af spunaspilum þó menn hafi lengi deilt um hvort tengja ætti þetta tvennt beint saman þar sem mannlegi þátturinn sem er svo mikilvægur í spunaspilum tapast eðlilega þegar í tölvuna er komið.
v a r g u r
Spunaspil Administrator”
Lýsing Wizards of the coast, útgefanda Dungeons & Dragons, vinsælasta og fyrsta spunaspilið.
http://www.wizards.com/default.asp?x=dnd/whatisdndStutt lýsing stolin úr Space 1889, gömlu spunaspili.
What is roleplayin? Space: 1889 is a roleplaying game, which means that the players each take the role of a single character in an adventure. These characters will be quite detailed, and players will assume the roles of their characters in adventure after adventure, gradually accumulating more knowledge, greater skills, and more prestige.
Each adventure is a story, and the player characters are its heroes, but with an important distinction: Their actions are not determined by an author, but rather by the players themselves.
One person does not control a character but instead serves as the referee. The referee's responsibilites include resolving events and encounters, playing the parts of other characters in the world with which the players come in contact, and most importantly, serving as the eyes and ears of the players. He describes the world to them as they would experience it, in all of its exotic, beautiful sights, its strange sounds, even its smells and the way it feels.
Þetta er kannski fullmikið af ensku. En ef þú hefur áhuga þá væri tilvalið að stoppa við út í Nexus á hverfisgötu og spurja eitthvað af fólkinu sem vinnur þar.
Svo má geta þess að það er auðveldast að læra með því að spila með einhverjum sem kann þetta.