Hey maður enginn mistök að koma með skoðannakönnun, alltaf gaman að vita álit fólks.
Mér fannst þetta góð hugmynd þrátt fyrir það að ég held að rpg sé ekkert háð aldri, það roleplaya allir, alveg frá því að maður fékk fyrsta he-man karlinn og alveg þangað til maður er gamall karl inná rex sem þykist vera moldríkur karl sem veður í kerlingum og á flottan bíl og hús (síðan fer gaurinn heim til sín í lödunni sinni).
Verst er að fólk sem er ekki í rpg er oftast að roleplaya án þess að vita af því. Við sem spilum hinsvegar erum að þróa hugmyndaflug og heilann almennt og höfum gaman að, þurfum ekkert að vera að ljúga að fólki um hverjir við erum eftir að við stöndum uppfrá álvinum okkar sem var að uppgötva að faðir hans var guð :)