Sko, Michael fór til að leita að Walt, en þá náðu “The Others” honum og fóru með hann á staðinn þar sem “The Others” voru.
Michael sá Walt, en hann samdi við “The Others” að ef hann myndi koma Henry út (einn af “The Others”) og koma með fólkið af listanum: Jack, Kate, Hurley og Sawyer, þá myndi hann fá Walt. En Michael þurfti að skjóta Önu Luciu til að koma Henry út (af því hún myndi aldrei leyfa honum að láta hann sleppa) og Libby kom bara inn á röngum tíma og röngum stað…
Ef hann hefði ekki drepið hana hefði hún geta sagt öllum hvað Michael gerði.