Haha já, ég þoli ekki svona fólk! Ég vildi að ég væri stjórnandi hér, er stjórnandi á sápum og þar eru líka margir að skíta út allt þar, rosa pirrandi!
Svo er það svo oft fólk sem horfir ekki einusinni á lost. Ég verð að viðurkenna að ég missti eiginlega móðinn í 3-4 seríu en ákvað að gefast ekki upp.
Ég heyrði nefnilega að þetta hafi verið skrifað fyrir 3 seríur en græðgi ABC krafðist að þetta yrði teygt í 6 (þó sel ég það ekki dýrara en ég keypti það) Þannig það er töluvert af uppfyllingarefni sem teygði þennan lopa sem gerði það auðvelt fyrir fólk að missa áhuga.
Finnst það frekar fatlað já.. og alltaf þegar ég spyr um ástæðu afhverju það reynir bara ekki að horfa á þættina þá kemur þetta svar “Þetta er bara týpiskt amerískt rusl” svo fer það heim að horfa á Gossip Girl ._.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..