Hvaða karakter er í minnstu uppáhaldi hjá ykkur? Hjá mér klárlega helv*** Kayla Scavo en sem betur fer er hún hætt. Svo þoli ég ekki prestinn sem reyndi að naugða Bree :P
Ég fíla samt Kayla, hún er svakalega skemmtilegur persónuleiki, hefði viljað láta hana fá betri endi, það að fara til ömmu sinnar og afa er mjög óáhugavert.
Já ég vorkenndi henni reyndar líka þegar hún dó, en hún var svo leiðinleg við Lynette og frekur og leiðinlegur karakter að ég var ánægð að losna við hana :P Var samt stundum gaman að henni, eins og t.d. þegar hún og Lynette voru á leiðinni einhvert til Tom og krakkana, man ekki hvar þau voru og þær voru e-ð að rífast og Nora vildi ekki fara lengra með lynette og húkkaði sér far með flutningabíl og e-ð svona.. :P
mér finnst skrýtið hvað allir hata kaylu og edi mikið þær eru ( að mínu mati ) báðar algerir snillingar , svo lúmskar og bara yndislega illgjarnar ég hata líklega hommana mest og carlos hommarnir pirra mig af því ég hélt að það yrði eitthvað djúsí drama þarna í kringum þá en svo gerðist bara ekkert sem mér fannst nógu skemmtilegt með þá carlos hefur alltaf pirrað mig í gengum allar seríurnar , fannst reyndar helvíti fyndið þegar hann réðst á hommann og þegar hann fór í stofufanglelsi en annars bara pirrandi , hann hefur reyndar skánað eftir að hann varð blindu
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..