Veronica rannsakaði mál ríkrar konu sem hélt að kærastinn sinn væri að halda framhjá sér. Rannsókn Veronicu leiddi til þess að allt útlit var fyrir að maðurinn væri ekki ríkisbubbi eins og hann lét konuna halda, en var þó ekki að halda framhjá henni. Kellingin dömpaði honum því, en það var rétt áður en Veronica náði að leiðrétta þann leiða misskilning að kærastinn væri eftir allt saman auðjöfur, sem hafði bara ekki viljað næla sér í konu vegna peninganna og því reynt að halda þeim leyndum! En það var of seint fyrir konuna, hún hafði þá þegar látið elskuna sína gossa … gott á hana, hún var algjör sækó :-)
Veronica komst svo að því að Duncan er búin að vera að heimsækja Meg á spítalann allt frá því að hún lenti í slysinu, en fær þó ekki að sjá hana. Hann situr bara fyrir utan, Veronica þurfti því að spyrja sig ýmissa spurninga um hvort að Meg væri Duncan meira virði en hann vera að láta???
Veronica spurði líka Logan um símtalið og kynnti hann fyrir staðreyndum málsins. Curly var drepinn, Curly þekkti Aaron og Curly hafði alla þekkinguna sem þurfti til að sprengja upp rútur … Logan vissi að sjálfsögðu ekkert um þetta mál og benti Veronicu á það að umrætt kvöld (þegar hringt var í Weevil og honum sagt að Curly hefði sprengt rútuna) var partý hjá honum og húsið því fullt af fólki. M.ö.o . hver sem er hefði getað hringt!
Þetta er að ég held það helsta … vonandi hjálpar þetta eitthvað:-)