Fyrst var Hurley að reyna að grennast og þau Libby henda öllum matnum sem Hurley var að geyma, en þá er Dharma búið að senda meiri mat og þá vill Hurley ekki meir. Hann sér ímyndaðan vin sinn sem hann hitti fyrst á geðdeild sem hann var í, já hann var geðveikur (bókstaflega). Þessi ímyndaði vinur hans hét Dave og vildi ekki að Hurley grenndist og sagði honum að læknarnir á geðdeildinni væru vondir. Þeir gerðu áætlun um að komast af geðdeildinni og það virkaði en læknarnir voru búnir að segja Hurley að Dave (ímyndaði vinur hans) væri ekki raunverulegur.
Og þegar Dave hoppaði út um gluggann í geðdeildinni lokaði Hurley glugganum og fór aftur inn í geðdeildina. En á eyjunni var Dave að telja Hurley trú um að allt þetta á eyjunni, persónurnar, atvikin og allt annað á eyjunni væri í höfðinu á Hurley, hann væri enþá á geðdeildinni.
Dave var næstum búinn að plata Hurley í að svipta sér lífi en Libby kom og sagði honum að þetta væri raunveruleikinn. Á meðan játaði maðurinn sem þóttist vera Henry Gale að hann væri einn af the Others en hann þorði ekki að segja meir því “Him” myndi drepa hann ef hann segði meira.
En það kom líka í ljós að Hurley hafði drepið nokkra menn þegar hann fór á pall sem átti að geta haldið 8 manns en það voru 23 manns á honum (athugið 4 8 15 16 23 42) og pallurinn hrundi og nokkrir létu lífið.
Ég man ekki mikið meira úr þættinum.