Það er s.s. búið að gefa það út að næsta sería muni kallast Prison Break: The Manhunt, sem gefur í ljós að serían muni nokkurn veginn snúast um að þeir eru á flótta undan löggunni - líkt og fyrsta sería snerist um flótta úr fangelsinu.
Annars er nokkurn veginn búið að staðfesta að seríurnar verði þrjár í heildina og muni þá hætta, enda er ekki hægt að fara endalaust áfram með þætti sem þessa þar sem að plotið endist væntanlega ekki lengi. En höfundarnir hafa sem sagt gefið út að þeir eru sirka með plot fyrir þrjár seríur.