Þetta var allt svo miklu einfaldara þegar að maður gat látið allt flakka.
Nema hvað þátturinn sem að ég horfði á í gær var allavega 2 klúta, hann hefði líka átt að heita the Body part 2, svo var Angel auðvitað á svæðinu svo að það var líka urrað svolítið. En skil ekki hvað þeir eru að rugla með Spike, þú skilur þetta þegar að þú ert búin að sjá hann, ekki það að mér finnst heldur aldrei leiðinlegt að sjá hann eins og þú veist. En þátturinn einkenndist auðvitað mikið af sorg og svona life goes on þema í gangi, en líka smá spenna.