Dark Angel Ég er ekki með stöð tvö sjálf og get þess vegna því miður ekki horft á þessa þætti, en ég var í sumarbústað núna fyrir stuttu og sá þá einn þátt af Dark Angel, Mér fannst hann soldið “superficial” eða hvað það nú heitir, en samt góður, það sem ég var mest ánægð með er það að þessi vinkona hennar er lesbía, það eru nú ekki margir sem hafa þorað/viljað hafa lesbíur í sínum þáttum/myndum! Ég vildi bara að ég gæti fylgst með þessu!! En svona er lífið, no cash, no fun!

Vegna aðdáun minn þá ætla ég að skrifa smá bio um hana!
Valarie Rae Miller heitir gellan, hún ólst upp í Fort Worth, TX og “meikaði” það fyrst þegar hún kom fram í “radio Shack” auglýsingu ennþá í menntaskóla. Í sumarfríi fór Valarie til Los Angeles til að reyna sig sem “stand-up comedian”. Hún fékk svo góða dóma að hún flutti til L.A. Þrátt fyrir mörg tilboð um að ferðast um landið og koma fram, Valarie ákvað að halda áfram að reyna að “meika” það í L.A. sem leikkona, þar býr hún núna.
Hún er best þekkt fyrir Dark Angel og One saturday morning. Hún kom einnig fram í Hollywood confidental, og 'The Disappearance of Kevin Johnson.
Just ask yourself: WWCD!