Ákveðið hefur verið að breyta nafninu á áhugamálinu Sorp í Þorp. Þá mun fólk segja “Farið með þetta inn í þorpið”, “Við erum þorparar” og leyniklúbbur Mizzeeh mun heita “pr0þ”
Neidjók. Það væri samt awesome.
Magnús Eiríksson
“Þau sögðu að ég væri þorpari
þorpari í þorpinu
og kjaftasögur kunni fólk um mig,
ég flutti burt úr þorpinu.
Svo kem ég aftur löngu síðar
til að líta' á gamla staðinn minn.
Tvær gamlar konur stungu saman nefjum
þarna kemur þorparinn
Nú lá mín leið um stræti stórborga
og oft var ég þar einmana.
Ég veit samt ekki hvers ég saknaði
en upp af svefmi vaknaði.
Hér kem ég aftur svona löngu síðar
til að líta' á staðinn minn
og finn að ég er enn í eðli mínu
sami gamli þorparinn.
Þau byrja öll og enda alveg eins
líkt og milli sleggju og steins.
Með ógnar brimöldu á aðra hönd
og sjoppu út við gráa strönd.
Hér kem ég aftur svona löngu síðar
til að líta' á staðinn minn
og finn að ég er enn í eðli mínu
sami gamli þorparinn
Á meðan grösin uxu í vorinu
unnum við í slorinu.
Hjá einu af fyrirtækjum sambandsins
inná reikning félagsins.
Hér kem ég aftur svona löngu síðar
til að líta' á staðinn minn
og finn að ég er enn í eðli mínu
sami gamli þorparinn
og finn að ég er enn í eðli mínu
sami gamli þorparinn.
Þorparinn - þorparinn
þorparinn - þorparinn…”