Já kæru lesendur!
Þið hugsuðuð rétt þegar þið sáuð titilinn!
….Nema þið hafið hugsað um eitthvað annað en jólatrjákeppni, þá hugsuðuð þið vitlaust.
Því að eftir hina ótrúlega, frábæru hugmynd hinnar tremmasvölu og mögnuðu LindeLou, hef ég ákveðið að halda jólatrjákeppni!
Það er reyndar ekki svít að gera upp á milli hluta en það er samt gaman að þessu ^^
Hún fer sem sagt þannig fram að:

Fólk sendir inn mynd af jólatrénu sínu, myndirnar koma inn á sorpið og að lokum ákveð ÉG HVER VINNUR! ÞVÍ LÝÐRÆÐI VIRKAR EKKI OG EINRÆÐI VERÐUR AÐ TAKA YFIR!

Nei jæja ókei ég skal hafa kosningu um það…
Fresturinn til að senda inn mynd er að gera það áður en árið 2007 renur í garð, eða 31. Desember, 00:00.

Skemmtið ykkur og vonandi taka einhverjir þátt!
Ég nenni ekki að hafa mynd með svo ég teikna sjálfur jólatré úr táknum:
                    *
                   <_>
                  <___>
                 <_____>
                <_______>
               <_________>
              <___________>         
             <_____________>
                 I   I
                              

Djöfull er ég fær…