Jeeebb… Ég veit að ég er nýbúinn að fá adminstöðuna aftur en það kom svolítið upp á =)

Ég mun verða afskaplega lítið á huga næstu 2 mánuði, auk þess sem ég verð afskaplega lítið á MSN og afskaplega lítið í tölvunni bara. Sem gerir það að verkum að ég get ekki fylgst með áhugamálinu eins og ég vildi geta.

Svo ég verð svona eeeeiginlega í fríi og eeeeiginlega ekki. Ég skoða huga alveg daglega en ég minnka huganotkun mína til muna næstu 2 mánuði. Svo ég get ekki fylgst með áhugamálinu af fullum krafti, þó ég muni fylgjast með því þegar ég kíki á það. Þetta er eiginlega ekki frí, heldur bara… Ég minnka mikið við mig.

Svo, ég mun vera hérna áfram þó það verði ekki mikið =)

Eftir 2 mánuði ætti ég svo að geta komið aftur og sinnt þessu af krafti =) Þangað til, mun ég líta hingað í stuttan tíma daglega. Hegðið ykkur vel á meðan =)