Ég færi ykkur.. Tunnu verðlaunaafhendingu mai/apríl 2000 og sjö! (Tilnefnt af hinum miklu frábæru fullkomnu og yndislegu Lexu Latex (LindeLou) og Raggzieh (Padfoot) WOO *Delete klappar*.)

Hvað er tunna ? Jú tunna er verðlaun (huglæg verðlaun) sem veitt eru fyrir framúrskarandi sorpmennsku (sem lítið hefur verið um því miður ehemm..) en já keppt er í mörgum liðum og megi hann verða stoltur sem hreppir tunnu :) Langt er síðan seinasta tunna var veitt en ég hef nú endurvakið hefðina að beiðni notenda. Ýmindið ykkur nú gullfallega sorp tunnu (Allir áhorfendur ahhh ooooo *Homer augu*), úr gulli gerð og með fallegu silfur merki sorps. Svo á þessum fágætu verðlaunum er nafn þitt ritað með blóði, muhahahaha. Þetta er það sem þú færð í þykjustunni ef þú hefur staðið þig vel hér á þessu áhugamáli. Ert þú ekta sorpari ? stendur þú þig vel í gerð greina, kannana og korka ? hefur þú það sem þarf til að hreppa 2000 og 7 Tunnu ?

Veitt verður tunna fyrir eftirfarandi flokka: þess má geta að þessir flokkar geta breyst á komandi tunnu afhentingum.

Besta greinin
Besti korkurinn
Besta myndin
Besta könnunin
Besta fréttin

Virkasti sorparinn
Mesta ljóskan
Fyndnasti sorparinn
Mesta krúttið híhí

Ég finn að loftið her inni er margþrungið(?) spennu og svita, fólk er æst í að vita hver sá heppni/heppna er… dududummm. Nú myndi ég láta fólk gera svona bylgju ef það væri hægt. (Delete: *gerir bylgju*)
Anyways ég ætla bara að koma mér beint að efninu og ekki vera að draga þetta neitt.

Besta greinin mai/apríl 2007

Sendar voru inn margar margar greinar á þessum tíma mis góðar, sumar einstaklega framúrskarandi en aðar ekki svo mjög. Nokkrar komu til greina en við vorum samála um að ein var einstaklega flott svo ekki sem minnst á fyndin. En sú ágæta grein er….
How to kill various creatures guide by Raskolnikov eftir Raskolnikov að sjálfsögðu. Þakka þér fyrir þessa frábæru grein mjööööög fyndin.

Besti korkurinn

Held að það se óhætt að segja að það var um marga korka að ræða enda mikið korka flæði sem er gott :) en við vildum einhvern kork sem veitti skemmtun og ánægu. Eitthvað svo æðislegt að því fá ekki orð lýst en sá korkur er.. “Í fyrsta sinn í sögu tímans: HENGIMANN!… á sopinu. (svo ég viti)” eftir THT3000 til hamingju þú færir okkur gleði á sorgar tímum hlátur þegar mamma grætur og ást þegar það er svo mikið hatur, við elskum þig öll og þinn kork að eilífu.

Besta myndin

Þá er komið að bestu myndinni, þetta var ekki erfitt val við vissum samstundis hvað mynd ætti að bera sigurinn. Ég mundi nú eftir þessari mynd þó gömul sé svo hún er minnug. Sú mynd er “meðlimirkkk að skemta sér” http://www.hugi.is/sorp/images.php?page=view&contentId=4671028
Þetta er eitt það fyndasta sem hefur komið hingað lengi verð ég að segja haha, þessi mynd var send af sorparanum Fuckface. Til hamingju Fuckface þú áttir þetta skilið.


Besta könnunin

Við hoppum yfir þennan lið þar sem ALLAR kannaninar SÖKKA og hana nú! Ég er evil mér er sama >:(
(Padfoot: persónulega fannst mér mín könnunn ofur en neiiiiii ég má ekki tilnefna sjálfa mig…*er ninja*)

Besta fréttin

Ég biðst fyrirframm afsökunar á því sem ég er að fara segja en besta frettin var “Raskolnikov kemur með fréttir!” eftir Raskolnikov er það bara ég eða notar hann alltaf notendanafnið sitt í fyrirsögn.. allavegna þetta var ágætis skemmtun takk fyrir það. Ps: ekki lemja mig fréttaritarar :(

Þá er komið hlé á þessari skemmtun en því miður verða engir skemmtikraftar.

Afsakið hlé..


Ókey snúum okkur að næsta lið.

Virkasti sorparinn.

Já hver hreppir refresh tunnuna :D hver er það sem er virkastur af þeim öllum, maður sér nafn hans birtast á flestum korkum og held að það se ekki sorpari sem ekki þekkir þetta nafn. Það kemur engum á óvart þegar ég hrópa nafn hans en það er…. Laddis til hamingju Laddis þú ert virkasti sorparinn í þessum mánuði/um. Gerðu svo vel að þiggja þessa tunnu fyrir viðleitni þína og áhuga á sorpinu.

Mesta ljóskan

Hahah það er ekki ég nei! Fyrir ykkur sem sögðuð ég >:( (Padfoot: *flautar*) en við eigum okkur litla ljósku sem felur sig bak við tré og hoppar fram öðru hverju og kemur með eitthvað sjokkerandi ljóshært, veit ekki hvort hún sé ljóshærð.. en það er hugurinn sem skiptir máli right :) ? Delete! Þú ert okkar ljóska, þú sem fyllir hjörtu okkar af hlátri og kátínu með ljóshæðu þinni :) til hamingju með tunnuna. Farðu vel með hana og passaðu þig að týna henni ekki.

Fyndnasti sorparinn!!!!!!

Já Ussss hver er nú fyndastur af þeim öllum, hver er sannur sorpari! Þennan á að taka til fyrirmyndar, og hlusta á og biðja um húskaparráð. Ójá og auðvitað hlægja af. Hann er engin annar er………. ChocoboFan sem fær titilinn fyndansti sorparinn. Haltu áfram á þessari braut og þú verður uppistandari :) og ef þú kommentar hér á þetta þá ætlast ég til að það sé fyndið >:( annars….

Mesta krúttið

Já það kemur engum á óvart að messta krútt sorpsins fyrr og síðar er DrHaHa við elskum þig öll og haltu áfram að vera dúllan okkar okkur til gleði :) Keep ‘em fréttir coming og brosa ^^

Þetta var Tunnu verðlauna afhenting Pr0s, ég vil bera sérstakar þakkir til allar sem unnu og einkar sérstakar þakkir til Röggu okkar (Padfoot) sem hjálpaði mér að velja í þetta. Við sendum henni samúðarkveðjur þar sem hún kemst ekki inná huga í augnablikinu vegna tæknilegra örðuleika. Þú átt hug okkar allra mússímússi (Padfoot: ég þakka ^^)


P.S. Þessi Tunna var leiðrétt og bætt af Naflastreng og Padfoot ^^