Afsakið hvað þessar fréttir koma seint en mér sýnast þær ekki koma seint miðað við hinar… Fréttaritarar! Farið nú að standa ykkur!

*Maður með bjórvömb situr inn í stofu og öðru hverju heyrist *klikk* þegar hann skiptir um stöð á fjarsjýringunni. Svo öskrar hann “Kolla! Krakkar! TSNG er að byrja!” TSNG lógóið fadear inn á skjáinn auk þess að Volvo 142 með Mora Nisse heyrist sem fréttastef kveldsins*


Góðan dag. Nú verða sagðar fréttir frá TSNG!

Innsent efni
**********************************
Kaea aðeins of fljót á páskaeggjunum!
**********************************
aegishjalmur kennir Sorpurum að föndra
**********************************
Sedna fær útrás fyrir korkaþörf sína
**********************************
:O Æðstistrumpur gleymdur!
Þ*********************************
Hestar eru ekki til!
***********************************



Innsent efni

Innsent efni í dag var engin grein og samkvæmt mínum talningum hefur ekki komið grein í 11 daga (miðað við gærdaginn).4 myndir og eins og venjulega slatti af korkum sem eru ekki nógu vel spammaðir! en þetta kemur allt.


Kaea aðeins of fljót á páskaeggjunum

Kaea var að borða páskaegg og það var ekki einu sinni kominn páskaeggja-éti-dagur! Kannski ruglaðist hún á dögum, en mér er alveg sama. Tilgangur korksins var að spyrja hvernig páskaegg við fengjum sem er frumleiki í hámarki en þessi spurning hafði ekki komið nema svona tuttugu sinnum seinustu vikuna. En nóg af því





aegishjalmur kennir Sorpurum að föndra

Hann aegishjalmur kenndi okkur að búa til páskaegg ekki úr nammi. Því miður nenni ég ekki og hef ekki tíma í að gera þetta nema kannski á næsta ári. En meira um þetta <url=http://hugi.is/sorp/threads.php?page=view&contentId=3350084>hér</url>


Sedna fær útrás fyrir korkaþorf sína

Sedna ritaði kork í dag um eitthvað sem ég nennti ekki að þýða yfir af ensku og á Bambino19-tungumálið. En þeir sem nenna að þýða klikkið á <url=http://hugi.is/sorp/threads.php?page=view&contentId=3348362>linkinn</url> og fattið um hvað korkurinn er því ég hef ekki sagt nógu ýtarlega frá honum.


:O Æðstistrumpur gleymdur!

Bjossas komst að því að það vantaði Æðstastrump í könnuninni sem er ekki nógu gott! Kannski er hann týndur? Og já, ég var að fá þær fréttir að illA, Vansi, Mizzeeh og RobbieFowler ásamt nokkrum vel þjálfuðum apaköttum frá JReykdal séu að leita að Æðstastrumpi á Sorpinu og nokkrum aðliggjandi áhugamálum.



Hestar eru ekki til

dresi89 fann út með hjálp <url=visindavefur.hi.is>Vísindavefsins</url> að hestar eru ekki til. Niðurstaðan virðist rétt en ég og minn nördahaus botnuðum ekkert í þessu. Kannski er þetta rétt eftir allt saman því í hvert skipti sem við keyrum framhjá hestum segir pabbi “Nei sko, sjáiði kisurnar” til að stríða systur minni.


En þettta voru fréttir frá TSNG fyrir 15. apríl 06.

Sorparar! Takið ykkur á!

Bambino19! Yfir og út!


E.S. Þess má til gamans geta að eftir þessar fréttir er ég með 1800 stig á huga og 508 á sorpinu og munið, einu sinni var ég Anti-Sorpari