FRÁ MADCLAW!
*Jólasveinninn kemur hlaupandi inn, veifar höndunum og fær alla með sér í geggjað grúvaðan dans og sest svo að lokum fyrir aftan borðið* Gott kvöld gott fólk! Þetta ku jú vera Sir MadClaw of Camelot hér; ég bauðst til að taka fréttirnar í dag þar sem að enginn annar hefði viljað það og svo sendir Leifur þetta inn!
Í fréttum er þetta helst:
Jólasorp!
Jólin koma!
GLEÐILEG JÓL!
Jólin koma!
Bless :’(
Jólin koma!
Jólagjafir!
Jólin koma!
Greyið v1ruz
Jólin koma!
Þess má geta…
Jólin koma!
Jólasorp!
Jólin koma!
Það komu 6 myndir og 2 greinar, greinarnar hétu Gleðileg jól :Ð(eftir vansa) og Jólgjarfir!(eftir Benna) sem að allir sem að fengu jólgjafir eiga að commenta á!
GLEÐILEG JÓL!
Jólin koma!
Ég ætla að notfæra mér þetta tækifæri og óska öllum sorpurum gleðilegra jóla! Og ég held ég tali fyrir hönd allra þegar að ég óska þeim langlífis, farsældar á komandi ári og líka gleðilegrar restar af jólum! Takk fyrir Leifur, Hugi og Benni; þið eruð að vinna frábært starf hér á sorpinu! GLEÐILEG JÓL!!!
Bless:’(
Jólin koma!
Því miður hefur hinn ávallt góði og skemmtilegi fjarhundur ákveðið að yfirgefa huga, hugsanlega fyrir fullt og allt! Hann afrekaði marga góða hluti, svo dæmi sé tekið þá stofnaði hann Malenistafélagið.. Fjarhundur! Ef að þú ert að lesa þetta þá munum við öll sakna þín og sjáum við eftir því að þú sért að fara!
Jólagjafir!
Jólin koma!
Fréttamaður komst að því í dag að margir sorparar eru alveg rosalega… Góðir*HÓST*dekraðir*HÓST*.. Til þess að sanna það þá ætla ég að koma með nokkrar af stærstu gjöfunum:
iPod nano 4GB!
Ferð til Spánar!
Splunkunýr sími!
19” LCD SKJÁR! LCD=flatur fyrir algjöra tölvu n00ba ;)
Sjálfur fékk ég engar stórar gjafir! 2 bestu voru bók og handsmíðað tafl frá Perú! En hinsvega keypti ég 55 gjafir! Og eyddi ég 70k í það, þó svo að ég hafi reyndar eytt 12k í jólagjöfina hennar móður minnar.. En þess má geta að allir Sorparar eiga að skrifa um þær jólagjafir sem að þeir vilja nefna á greinina hans Benna(Jólagjafir!)…
Greyið v1ruz
Jólin koma!
Hann greyið v1ruz okkar lenti í því hræðilega atviki í gær(23.).. Die hard fan-ar hennar, PLÍS ekki koma með svona skítköst og þannig, þetta er ekkert illa meint; ég bara vorkenni grey stráknum(right?), að lenda í svona! Ég meina, þetta er bara mitt álit en allaveganna þá er ég uppskroppa með efni í þessa frétt…
Þess má geta…
Jólin koma!
Þess má geta að HoneyBunny hélt að meaniac þýddi vitfyrringur en það er hreinlega bara vitlaust þar sem það er maniac sem þýðir vitfyrringur..
Jólin koma!
Vansi er í frábæru skapi og vansi! Ég fékk jólkveðjuna þína!
Jólin koma!
Jújú, þá eru hinar yndislegu fréttir á hinum yndislega degi, 24. desember, að lokum búnar! Sir MadClaw of Camelot kveður með þessu jólalgi! ATH Þetta er allt gert með samþykki Leifs(Mizzeeh)!
SAGAN AF JESÚSI –Baggalútur
Það var um þetta leyti
þarna suðurfrá - í miðausturlöndum.
Þar var ungt par á ferli
konan kasólétt - þeim var vandi á höndum.
Öll mótelin vor'upptekin
og yfirbókuð gistiheimilin.
Og þannig byrjaði sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.
Þau létu fyrirberast
inní fjárhúsi - með ösnum og kindum.
En það var ósköp kósí
ekki ósvipað – gömlum biblíumyndum.
Þar kom í heiminn – mannkyns von
hinn kunni Jesús Kr. Jósepsson.
Hann endaði í jötunni
beint undir Betlehemstjörnunni.
Og þannig hljómar nú sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.
Hallelúja!
Og þannig hljómar nú sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.
Svo rákinn nefið vitringar
sem fyrir rælni voru staddir þar.
Þeir óðu inn með gras og gull
og eitthvað óríental jurtasull.
Ó, Jósep sendi SMS.
Ó, María, var bara furðu hress.
Ó, barnið lá og snuðið saug
með bros á vör – og soldinn geislabaug
Og þannig endar nú sagan af því
þegar hann Jesús kom heiminn í.
Já, þannig hljómaði sagan af því
þegar hann Sússi kom heiminn í.
Þið ráðið sjálf hvort þið trúið því
Amen