Jæja, ég var búinn að skrifa þetta og Mizzeeh gaf mér leyfi svo að ég sendi þetta inn þrátt fyrir supernanny, bara lesa bæði =D

(Fréttastef byrjar í teknóstíl og HerraFullkominn dansar vélmennið með)

Í-Fréttum-Er-Þetta-Helst! (Vélmennarödd, að verður alltaf hik á milil orða en nenni
ekki að gera alltaf - =S)


Ein grein samþykkt en 3 myndir
****************************
Krummar
****************************
Smjaðursgort
****************************
Pilsnerkjúlli
****************************
Starfsdagsmont
****************************
Nafnatilraunir
****************************
Besti stærðfræði tími í heimi
****************************
Sorpararsamkoma!
****************************
Frumkorkur
****************************
Rúdolf Týndur
***************************
8 Bekkingar fá að koma!
***************************

(Hætti að dansa og rödd verður venjuleg og stef hættir)

Góða kveldið sorparar í dag verða sagðar sorpfréttir fyrir þann 21. September, Miðvikudag.

Ein Grein Samþykkt en tvær myndir
****************************
Ein grein var samþykkt og 3 myndir, ein var frá Pikknikk, ein frá foxyme (wrarr ;)))
og ein frá Feiturfroskur, tvær af þeim voru sjálfsmyndir, sú frá Feiturfroskur og foxyme.
Greinin var um kennara og var send inn af betayr.

Krummar
****************************
Í morgun var krummi fyrir utan gluggann hjá Addydogg og krunkaði í minnst 15 mín
og varð það til þess valdandi að hún gat ekki sofið og leiðindi. Einnig varð hún sein í skólann.
En hér kemur creepy parturinn, hann var en þarna þegar hún kom úr skólanum!

Smjaðursgort
****************************
Lily2 gortar sig yfir því hvernig ég smjaðraði fyrir henni til að fá fyrirgefningu
eftir það hrottalega brot að gleyma afmæli henanr í seinasta fréttatíma mínum.
Mér fannst það samt þess virði til að fá fyrirgefningu og fannst þetta vel smjaðrað
hjá mér C=D Sorparar hlóu að þessu og gerir það mig enn glaðari c=D

Pilsnerkjúlli
***************************
Faðir Lily2 er að fara að grilla Pilsnerkjúkling og bendir hún á að
ef hún muni segja eitthvað mjög heimskulegt þá vitum við af hverju.
Margir sorparar virtust hinsvegar halda að Pilsner væri óáfengur en það er hann ekki.
Bendi hér á svar mitt ef þið hafið áhuga:
Neibb, smá áfengi, ef þú drekkur slatta af honum hratt verðurðu full/ur, hjálpar að reykja með.

Starfsdagsmont
**************************
Mont virðist vera inn núna því Lily2 var ekki sú eina til að monta sig, honeynut montaði sig
yfir því að hún fái að sofa út fyrir morgundainn vegna starfsdags, einnig er hún búinn í
skólanum 11:10 á föstudaginn.
Hún er vægast sagt, heppinn.

Nafnatilraunir
**************************
Í kvöld sendi sorparinn Heidis inn sniðugan kork, hann snerist um það að allir áttu að
skrifa nafn sitt (huga nick eða alvöru nafn) með ýmsum mismunandi aðferðum.
S.s. með Löppinni, lófanum, Kinninni og fleiru.
Hér er linkurinn og ég hvet alla til að taka þátt
http://www.hugi.is/sorp/threads.php?page=view&contentId=2505989

Besti Stærðfræðitími í heimi
**************************
nesi13 var í dag í stærðfræðitíma og segir hann að það hafi verið besti stærðfræðitími
í heimi! Þeir lékur sér með ýmsa hluti svo sem þyrlur og báta úr pappír en eftir
skemmtilegan og spennandi leik með ýmsum slysum og óvæntum uppákomum kom kennarinn
og stöðvaði þá félagana.


Sorparasamkoma!
**************************
Nú hefur verið formlega ákveðin samkoma hjá sorpurum! Mizzeeh og meaniac unnu saman að þessari
góðu hugmynd og hvet ég alla sem eru í 9.Bekk eða yfir að mæta!
Ýmislegt skemmtilegt verður á dagskrá, svo sem American Style, rölt og flipp.
Sjálfur mæti ég ef að leyfi næst hjá foreldrum.
Hér er linkur með frekari upplýsinugum, lesið líka neðar því þar bætir
meaniac við upplýsingum.
http://www.hugi.is/sorp/announcements.php?page=view&contentId=2506251

Frumkorkur
**************************
Í dag sendi sorparinn sigurvin inn sinn fyrsta kork á sorpið. Ég óska honum til hamingju.
Korkur sá fjallaði um íþróttir og þar spurði hann hvort sorparar æfðu íþróttir og þá
hvaða, hann æfir sjálfur körfubolta.

Rúdolf Týndur
***************************
Hræðilegur atburður gerðist í dag, hann Rúdolf hennar Gellan123 er týndur!
Segist hún vera á barmi taugaáfalls og biður alla að hafa augun opinn fyrir honum.
er mjög lítill, sniðugur og myndarlegt kennaratyggjó!
Vonandi finnst hann sem fyrst!

8 Bekkingar fá að koma
***************************
Þetta var að berast inn! Í einka MSN-viðtali við Mizzeeh sagði hann mér að
8. Bekkur fær líka að koma með í sorpferðina! Þetta eru gleðifregnir og eru
líklega margir ánægðir með þetta!

Jæja, ekki er meira í fréttum í dag, verið þið sæl og sorpist áfram!