Það var svona vefsíða. Ókei?
Á þessari vefsíðu skrifaði einhver að hann vildi hefna sín á kærustunni sinni (minnir mig) fyrir að halda fram hjá sér.
Hann ætlaði að hefna sín með því að sýna öllum mis naktar myndir af henni.
Allir fengu gefinn upp sinn eigin link á síðunni, og fyrirmælin sögðu að það yrðu a.m.k. 5 að fara inn á þessa síðu í gegn um þinn link og þá sérðu myndir. Svo fleiri og meiri myndir.
Þú gerðir þráð á áhugamálinu húmor og reyndir að gabba fólk inn á þinn link til að geta séð þessar ómerkilegu myndir.
Það sem þú áttaðir þig ekki á var að þetta var feik og gæinn var bara að græða á öllum sem komu á síðuna út af auglýsingum. Svo voru þetta bara amatjör, lélegar myndir meðan það er til mikið af dóti á netinu.
Ég commentaði á mínum megin account (Alexxx) og sagði að þar hefðir þú tapað allri þinni sjálfsvirðingu.
Þú svaraðir að þér væri alveg sama.
Þá sagði ég að ég myndi aldrei gleyma þessu og að ég myndi minna þig á þetta að eilífu.
Auðvitað hefði ég gleymt þessu um leið, en ég bætti því í “Mínar upplýsingar” dálkinn á accountinum Alexxx, og skrifaði þar nokkra notendur sem gerðu þetta m.a. þig.
Bætt við 7. júlí 2009 - 16:11
held að þetta hafi gerst fyrir svona ári síðan.