Tíska hefur alltaf verið kjánaleg… Sem dæmi þá er fátt kjánalegara en það þegar hnakkar eru með belti, en eru samt alltaf við það að missa niður um sig buxurna
Ég er farinn að halda að gelið drepi heilafrumur eða eitthvað… Allavega veit ég það að allir sem ég þekki sem nota ekki gel kunna á belti :P
Vá hvað ég er samt að verða geðveikur á öllum þessum gelhausum sem eru að væla um að ég ætti að klippa mig og þá myndi bara nánast byrja að rigna gulli á mig eða eitthva, þegar ég er bara að reyna að fá að drekka mitt áfengi og spjalla við vini mína í friði…
Ég held að það sé samblandan af öllu þessu sulli sem þetta fólk heyrir í gegnum fm957. Kalla reyndar ekkert að því neitt annað en popp, þar sem þetta er hvort eð er allt sama mainstream ruglið :P
Jebb. Ég hef lengi verið að pæla hvort það sé ekki málið að skella smá blásýru í gelið áður en það kemur í búðir, og tékka hversu margir drepast og hvort einhverjir myndi viðnám ;P
þess má til gamans geta að ég er þessi í miðjunni og þetta var ekki tískusýning heldur var þessi mynd tekin á laugaveginum þar sem ég var að rölta um. Klæði mig alltaf svona
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..