omg, og svo eru gleraugun hans John Lennons kringlótt, sem er alveg eins og hringurinn sem er utanum djöflastjörnuna!
Og Ringo Starr heitir Ringo Starr af því að nafnið er stytting á Rosalega, Illur Náungi, Guðleysingi Og
Star. Semsagtm rosalega illur náungi og guðleysingi er bara annað orð yfir djöfulinn og Starr er bara lengri útgáfan af star sem er bein tilvitnun í djöflastjörnuna sko.
Svo er skeggið á Harrison beint strik ( - ), og nefið fyrir ofan skeggið er líka beint strik, |.
Þessi tvö strik mætast venjulega og búa til kross, en nefið og skeggið á Harrison eru svo andkristin að þverstrikið er svo neðarlega á krossinum að það er ekki einusinni fast við lóðrétta strikið, svo andkristinn er hann.
Bítlarnir eru hinir 4 synir Satans endurfæddir, það þarf ekkert að deila um það nánar.