óþolandi!
ohh ég er svo pirruð! strákarnir(ekki allir) í bekknum mínum eru svo óþroskaðir! alltaf þegar að það er smá kynning eða eitthvað, þá þurfa þeir að skemma fyrir öllum með því að haga sér eins og apar eða að öskra allan tímann eitthvað bull. Og áðan þegar að stelpurnar komu inní stofuna(íþróttir) eftir að þeir höfðu verið þar, þá var búið að fikta í öllu! Það var búið að eyða rafmagninu og fikta í ipodnum hjá vinkonu minni, útkrota *myndir* á borðið hjá annari stelpu og það var búið að skoða alla stílabókina mína og teikna risa ty**i yfir eina teikningu hjá mér, sem að ég hafði unnið lengi í! Þeir láta alltaf svona og henda ávöxtum á alla staði og eyðileggja allt fyrir öllum hinum. Þeir láta samt ekki allir svona, heldur bara aðalega þeir í hinum bekknum en annars eru hinir strákarnir bara mjög skemmtilegir:) samt afhverju geta hinir ekki bara ÞROSKAST og hætt að haga sér eins og vitleysingar?