Mér líður nefnilega eins og að /sorp-ið sé heimili mitt. Ég skráði mig á Huga sérstaklega út af /sorp-inu.
En hvað hef ég að bjóða, tiltölulegur nýfaggi?
Ég hef óslitalegan samning við Stjörnusnakk um óendanlegar birgðir af Papríkustjörnum gegn því að ég auglýsi þær. (Papríkustjörnur. Brakandi góðar, með papríkubragði :D)
Einnig á ég gælu-erni. Þeir eru oftast vinsamlegir, en ef eitthvað hættulegt er í gangi, breytast þeir í miskunnarlausar, fljúgandi stríðsvélar. Þeir eru einnig sérþjálfaðir í að skemma orkuver (algjör tilviljun sko, Tyggigúmmí).
Ef einhver vill ráða mig í lið sitt, ekki hika.
Bætt við 26. nóvember 2009 - 18:08
Svo er það líka þetta:
Lobsterman
Ekki gleyma því að þú ert maðurinn sem uppgötvaðir tilvist Arnar Öskur.