Komdu sæll og blessaður vinur, og vertu velkominn. Þú getur vonandi séð þér fært að mæta á næstu samkundu okkar til að við getum öll kynnst betur. Hún fer fram í húsi meistaranna, skipholti 70, og er ráðlagt að mæta með osta, kex og vínber eða eitthvert bakkelsi. Stjórnendur munu sjá til þess að heitt verði á könnunni, og jafnvel er aldrei að vita nema rauðvín verði á boðstólnum líka. Hlakka til að sjá þig nýherji.
Bætt við 20. nóvember 2009 - 20:36
Nei, úff, gleymdi ég að nefna tímann. Samkundan verður haldinn laugardaginn 12. desember klukkan 20, eins og áður sagði í húsi meistaranna að skipholti 70.
Atheists believe in the Goddess Athe, who is wise and powerful beyond measure. They are some of the most religious people in the world.