ég hef vaknað við að detta á gólfið, ég hef vaknað á gólfinu, ég hef vaknað við að pissa í ruslið (man drauminn, vaknaði, labbaði í baðherbergið en klósettið var það sem ruslið var og ruslið var þar sem klósettið var.) ég hef vaknað í þrem peysum og stuttermabol, ég hef vaknað við það að dreyma að það var verið vekja mig 5 sekúndum áður en mamma kom inn að vekja mig. ég hef vaknað við að segja nauts Viktor. (var að hugsa nautsipjautsviktor(wtf?)og vissi ekkert hvað var í gangi og hann sagði mér frá því) og ég hef vaknað frammi á gangi og það var andskoti óþægilegt.
Bætt við 13. ágúst 2009 - 03:30
og ég hef vaknað í vitlausu rúmi, sem er ekki bara óþægilegt fyrir mig.