Blokkaríbúð. 5 hæð. Íbúð 502. Stofa. Tölva. Stóll.
Þar sit ég…
og ég bíð.
Tvær yngismeyjar, ungmeyjar - á leið á ball,
og önnur þeirra sléttir á sér hárið.
Hin bíður. Tíminn líður.
Ríður?
Dreengz, mér leiðist.
Ég er búin að vera að stara inn í fiskabúrið með vondu lyktinni þónokkurn tíma og hef komist að þeirri niðurstöðu að gullfiskar eru einhverfir;
synda bara hring eftir hring eftir hring eftir hring…
alltaf eins, alltaf sami hringur…
hring eftir hring eftir hring eftir hring.
Hver vill lifa svona?
Þú?
Ennþá sól og bjart úti þó klukkan sé að ganga níu.
DYRASÍMINN!
Ég stend upp og svara. Rödd frá fjarlægu landi,
af asísku bergi brotnu…
a.k.a. Tælandi.
Mjámjámjámjá.
ÉG FOKKING OWNA ÞIG.