Góðan daginn Sorparar nær og fjær.
Ég er að skrifa þennan póst í mikilli reiði og angist. Þið spyrjið ykkur kannski, ‘Af hverju?’ Ég get svarað því. Ástæðan er sú að THT3000 (héðan af THT) hatar sameiginlegan góðvin okkar allra, Bobba leður. Ég sendi inn stórglæsilega mynd, gerða af mér sem hef einstaklega mikla shoop skillz, af Bobba sem er að fela sig í líkama Arnold Schwarzenegger's. Myndin heitir ‘Bobbi is back’. En nei, nei, þá allt í einu birtist THT og hafnar myndinni.
Ég bregst náttúrulega hinn versti við og ákveð að kæra hann en enginn lögmaður vildi taka þetta grafalvarlega mál að sér þar sem þeir töldu að það væri of hættulegt. Því leita ég til ykkar, Sorparar, og saman eigum við að gera slæma hluti við THT.
Eruð þið ekki reið?
Eruð þið með góðar hugmyndir að pyntingum sem vert væri að nota á THT?
Verið reið!!!!!!