Díses kræst maður ég fór í bíó í gær á Step Brothers.
Okey myndin var fín, en aftan á bíómiðanum mínum var tilboð á Burger King. Fínasta tilboð, 400 kall fyrir máltíð.
En neeeeeei, var tilboðið ekki útrunnið!
Bitur og sár fyrir svikin settist ég niður og þá sá ég auglýsingu “Frír forréttur á (stað sem ég man ekki hvað heitir) kíktu aftan á bíómiðann”.
Ég var auðvitað rosalega spenntur, leit aftan á miðann og hvað sé ég? Helvítis útrunna Burger King tilboðið!!
Úff hvað ég var pirraður!