Fór einusinni á subway með vinum mínum og ég fessti víst ekki lokið alveg nóguvel á glasið svo glasið datt á borðið þar sem allir voru að snæða matin sinni í ró og næði, glasið var fulltsvo kókið fór yfir allt borðið og yfi aaaallan matin. Það var vandræðalegt og kjánalegt.
Var einusinni vel full á balli með vini mínum og við fórum út af ballinu for somreasons og fengum okkur pitsu. Ég var svo heppin að detta niður stiga, kinnbeinsbrjóta mig og fá heilahristing.. var víst svo full eða eitthvað að mér var alveg sama og fann ekki fyrir neinu og ég stóð upp og kláraði pitsuna mína. Svo fórum við í leigubíl til að komast heim og ég ældi í leigubílinn (sennilega vegna heilhristingsins ekki ofdrykkju 8-)) og konan hennti okkur út og við urðum að labba það sem eftir var og vinur minn bara á nærbusxunum um hávetur (grímuball) hann fylgdi mér heim í skeifuna og labbaði svo heim til sín uppí kópavog á nærbuxunum.. til að gera það verra þá vaknaði ég dagin eftir og hugsaði “what.. á ég ekki að vera í fyrirpartýi..” fann svo stingandi sársuka í öllu andlitinu og leit í spegil.
Sá þar riiiiiisa glóðurauga útbólgið andlit og tvö risa sár sem umluktu andlitið á mér og ég með enga minningu um það sem hafði gerst um kvöldið. Man það ekki enn, hef bara þessa sögu um hvað gerðist frá þessum vini mínum. Plús það að ég týndi æpodnum mínum og stútaði símanum mínum næstum því :)
Ef það er ekki vandræðalegt þá veit ég ekki hvað.