Og í morgun vaknaði ég fyrst við það að mig klæjaði brjálæðislega á öllum maganum, bakinu og lærunum. Eitthvað ógeð hefur bitið mig útum allt og ég er öll í litlum klæjandi rauðum flekkum. Gleði. Ætlaði svo að reyna að sofna aftur en þá fékk ég einsog þruma úr heiðskýru lofti fossandi blóðnasir og þurfti að hlaupa framá bað í ofboði.
Og sit hérna núna eftir þessa hræðilegu lífsreynslu.
Því spyr ég, hvað/hver er það versta sem hefur vakið þig?
Mitt svar er annaðhvort ofangreint eða þegar bróðir pabba vakti mig með því að tromma á koddann minn og syngja “Djingolbell djingolbell djingoloðeveeeeei” í svona hálftíma. Hann syngur ekki vel. Djöfull var ég pirruð.
EÐA þegar vinkona mín bókstaflega henti mér útúr rúminu. Gólfið var kalt :C
Líf mitt er svoooo erfitt *andvarp*
We're just two lost souls wimming in a fish bowl.