Ég vaknaði seinna en vanalega, tíminn byrjaði ekki fyrr en 11:10 og svo var ég búinn 12:10. Ég var mættur 10:50, búinn að undirbúa mig andlega fyrir síðustu þrotraun ársins - EINN íþróttatími og svo var skólaárið búið.
Ég sá strax fólk sem ég kannaðist við, nálgaðist og var þá viss um að þarna var góðfélaginn minn hann OfurAlli sem sneri sér við, vinkaði og sagði Halló Birkir. Ég jánkaði og spurði hvort hann væri reiðubúinn fyrir íþróttir - strákurinn sneri sér við, tók íþróttatöskuna sína sem lá við hliðiná stjani028 og Pikknikk og við skunduðum af stað -
Þar mætti ég LindeLou og TinnaKristin sem voru að gera … eitthvað.. dönsku-verkefni? Örstuttu seinna sá ég Supernanny nálgast. LindeLou gaf mér fæv TVISVAR útaf því að ég var orðinn admin á sorpinu með henni. Ég hélt samt áfram af stað í íþróttir þar sem að ég eyddi tíma í hreyfingu.
Þegar ég var búinn mundi ég að ég þurfti að drífa mig heim, litli bróðir minn er veikur og ég átti að passa frá ~12-2, sem ég gerði. Áður fór ég þó með LindeLou að staðnum hennar og gekk framhjá HerraFullkominn
Beat that.